Ábyrgðarskilmálar
Titan Coatings & Apollo PPF – Framleiðandaábyrgð. Slíkar ábyrgðir eru veittar af viðurkenndum ásetningaraðila Titan Coatings & Apollo PPF og er studd af framleiðanda vörunar.
Titan Coatings® – Framleiðandaábyrgð
Með útgefnu ábyrgðarskírteini tryggjum við að húðanir sem notaðar eru á ökutækið þitt séu af hæsta mögulega gæðastaðli og hafi verið settar á af viðurkenndum samstarfsaðila Titan Coatings®.
Dagsetning ásetningar:
Ábyrgðartími:
Skráningarnúmer:
Nafn viðskiptavinar:
Ásettar varnir:
☐ PX10
☐ VULCAN
☐ PYRO
☐ APOLLO
☐ ZEUS
☐ STORM
Titan Coatings® – Framleiðandastudd ábyrgð
Þessi ábyrgð er gefin út af viðurkenndum Titan Coatings® ásetninngaraðila og studd af Titan Coatings® sem framleiðanda vörunnar.
Umfang ábyrgðar
Titan Coatings® ábyrgist að ásett húðun viðhaldi háum staðli hvað varðar vatnsfráhrindandi eiginleika, efnaþol og heilleika yfirborðs út tilgreindan ábyrgðartíma, að því gefnu að henni sé viðhaldið í samræmi við kröfurnar hér að neðan.
Kröfur ábyrgðar
Til að ábyrgðin haldi gildi sínu þarf eigandi ökutækisins að:
- Bera Titan Coatings® Ultra á meðhöndlaða fleti á sex (6) mánaða fresti.
- Koma með ökutækið árlega á viðurkennda Titan Coatings® uppsetningarstöð fyrir:
- Skoðun á húðuðum flötum
- Djúphreinsandi þvott og mat á ástandi yfirborðs
- Apollo yfirlagsmeðferð ef þörf krefur
Þessi árlega skoðun, djúphreinsun eða yfirlagsmeðferð er ekki innifalin í upphaflegu verði húðunarinnar og ber þjónustugjald.
Ef ofangreindum viðhaldskröfum er ekki fylgt getur það leitt til tímabundinnar stöðvunar eða fullrar ógildingar ábyrgðarinnar.
Undanþágur
Þessi ábyrgð nær ekki til:
- Galla í lakki, rispa, steinkasts, þvottaráka, blettamyndunar, vatnsbletta eða ætingar
- Skemmda af völdum slysa, rangrar notkunar, umhverfismengunar, núnings eða ryðs
- Skemmda af völdum rangra þvottaaðferða, sjálfvirkra bílaþvottastöðva eða notkunar á ósamþykktum efnum
- Viðgerða, endurmálun eða annarrar yfirborðsendurnýjunar sem framkvæmd er eftir að húðunin hefur verið sett á
Þessi ábyrgð gildir eingöngu um eiginleika og frammistöðu húðunarinnar, en ekki undirliggjandi lakk eða yfirborð.
Skilmálar
Ábyrgðartími og væntingar um frammistöðu eru skilgreind og tilgreind af viðurkenndum uppsetningaraðila og verða að vera í samræmi við ábyrgðarupplýsingar sem koma fram á reikningi viðskiptavinar.
Titan Coatings®, sem framleiðandi, styður og staðfestir ábyrgðina sem viðurkenndur ásetningaraðili veitir, en ber ekki ábyrgð á gæðum ásetningar eða ástandi ökutækisins.
Allar ábyrgðarkröfur eru háðar skoðun og samþykki þess viðurkennda ásetningaraðila sem framkvæmdi upphaflega ásetningu.
Apollo PPF® – Framleiðandaábyrgð
Við stöndum á bakvið gæði Apollo Paint Protection Film.
Frá kaupdegi tryggir ábyrgðin okkar að filman sé laus við efnisgalla við eðlilega notkun og þjónustu, að því gefnu að hún sé rétt sett á, rétt notuð notuð og henni viðhaldið samkvæmt fyrirmælum framleiðanda.
Við rétta umhirðu mun filman ekki springa, mynda blöðrur, "delaminera" gulna eða upplitast.
Helstu ábyrgðarskilmálar
- Ábyrgðin gildir eingöngu um upprunalega OEM-málaða fleti sem eru fullharðnaðir og þar sem filman hefur verið sett á af viðurkenndum ásetningaraðila.
- Endurmálaðir fletir eða ásetningu á fleti sem ekki eru málaðir, svo sem framljós, króm eða koltrefjaklæðningar (pianó), falla ekki undir ábyrgð.
- Endurmálun ökutækis fellur ekki undir þessa ábyrgð, óháð ástæðu þess að filman er fjarlægð.
Ábyrgðarkröfur
- Ef filman bilar við eðlilega notkun og rétta umhirðu á ábyrgðartímabili mun framleiðandi útvega nýja filmu til kaupanda að kostnaðarlausu.
- Tilkynna skal framleiðanda um ábyrgðarkröfu eins fljótt og þær koma upp og framvísa sönnun um kaup til að hægt sé að afgreiða ábyrgðarkröfuna.
Takmörkun ábyrgðar
- Framleiðandi ber ekki ábyrgð á tilfallandi, sérstöku, afleiddu eða refsikenndu tjóni.
- Þessi ábyrgð útilokar allar aðrar beinar eða óbeinar ábyrgðir, þar á meðal ábyrgð á söluhæfi eða hæfi til tiltekins tilgangs.
- Röng umhirða, misnotkun eða vanræksla á að fylgja ráðlögðum viðhaldsleiðbeiningum ógildir ábyrgðina.
- Framleiðandi tekur enga ábyrgð á skemmdum á filmunni eða ökutækinu sem rekja má til rangrar umhirðu eða viðhalds.
Með því að fylgja þessum leiðbeiningum um umhirðu og ábyrgðarskilmála getur þú notið langvarandi verndar yfirborðs á ökutækinu.
Ef spurningar eða áhyggjur vakna skal hafa samband við viðurkenndan ásetningaraðila eða framleiðandann beint.