Þjónustuskoðun
Viðhalds- og þrifaþjónusta ÓK Bón er hönnuð til að viðhalda útliti, vernd og virkni ökutækja sem hafa komið í vinnslu, svo sem lakkslípun, lakkvörn eða PPF filmu. Rétt viðhald er lykilatriði til að tryggja að yfirborð haldi sínum eiginleikum og endingu til lengri tíma.

Viðhald og þrif
Rétt viðhald skiptir lykilinn fyrir endingu lakkvarnar og ástand lakksins til lengri tíma.
ÓK Bón býður ekki upp á hefðbundna þrifaþjónustu eða almennan bílaþvott. Þrif sem framkvæmd eru hjá okkur eru sérhæfð þrif sem tengjast viðhaldi lakkvarna, ábyrgðarskoðunum, lakkslípun og öðrum yfirborðsmeðferðum.
Árleg ábyrgðarskoðun lakkvarna
Bílar með lakkvörn sem falla undir framleiðandaábyrgð þurfa að mæta í árlega ábyrgðarskoðun samkvæmt skilmálum viðkomandi framleiðanda.
Ábyrgðarskoðun er ekki hefðbundinn bílaþvottur heldur sérhæft viðhald þar sem lakkvörnin og ástand yfirborðsins eru metin.
Bíllinn er djúphreinsaður til að fjarlægja óhreinindi sem safnast hefur á yfirborðið og getur haft áhrif á eiginleika lakkvarnarinnar. Að þrifum loknum er vörnin skoðuð og virkni hennar metin og sett á Apollo TX200 yfirhúð.
Árleg ábyrgðarskoðun er nauðsynleg til að viðhalda gildri framleiðandaábyrgð þar sem við á.
Árleg ábyrgðarskoðun og þrif: 45.000 kr. með VSK
Árleg ábyrgðarskoðun og Apollo TX200: 149.000 kr. með VSK
Djúphreinsun lakkvarnar
Þótt lakkvörn auðveldi þrif kemur hún ekki í veg fyrir að hörð óhreinindi safnist smám saman á yfirborð hennar.
Vegfilmur, tjara, málmagnir, steinefni, vegsalt og önnur föst óhreinindi getur sest ofan á lakkvörnina. Með tímanum getur þetta dregið úr vatnsfráhrindingu, sléttleika og öðrum yfirborðseiginleikum hennar.
Þetta þýðir ekki sjálfkrafa að lakkvörnin sé hætt að virka.
Við sérhæfða djúphreinsun eru notuð viðeigandi hreinsiefni og aðferðir til að fjarlægja þessi óhreinindi án þess að beita óþarflega grófum aðferðum á yfirborðið.
Eftir slíka hreinsun geta eiginleikar lakkvarnarinnar komið mun betur í ljós á ný.
Súr og basísk þrif
Mismunandi óhreinindi krefjast mismunandi efnafræði.
Þess vegna getur sérhæft viðhald meðal annars falið í sér notkun á súrum og basískum hreinsiefnum, ásamt öðrum sérhæfðum efnum eftir því hvaða óhreinindi eru til staðar.
Markmiðið er ekki að nota sterkustu mögulegu efnin heldur rétta efnafræði fyrir þau óhreinindi sem þarf að fjarlægja.
Þannig er hægt að hreinsa yfirborðið ítarlega án óþarfa álags á lakk, lakkvörn, PPF eða aðra viðkvæma fleti.
Þegar vatnsfráhrinding minnkar
Minnkuð vatnsfráhrinding þýðir ekki endilega að lakkvörnin sé ónýt.
Óhreinindi sem liggja ofan á vörninni getur tímabundið dregið verulega úr vatnsfráhrindingu og öðrum eiginleikum yfirborðsins.
Þess vegna þarf fyrst að djúphreinsa yfirborðið og fjarlægja föst óhreinindi áður en hægt er að meta raunverulegt ástand lakkvarnarinnar.
Ef eiginleikar hennar eru enn óeðlilegir eftir rétt þrif er hægt að skoða ástandið nánar og meta hvort frekari aðgerða sé þörf.
Rétt viðhald heima
Lakkvörn kemur ekki í stað reglulegra þrifa. Hún gerir yfirborðið auðveldara í viðhaldi og veitir lakkinu aukna vörn, en rétt þvottaaðferð skiptir áfram miklu máli.
Rangar þvottaaðferðir geta valdið rispum óháð því hvort lakkvörn er á bílnum.
Forðast skal meðal annars óhrein eða of gróf þvottaáhöld og að nudda yfirborðið áður en föst óhreinindi hafa verið fjarlægð eins vel og hægt er.
Markmiðið er alltaf að hafa sem minnsta beina snertingu við óhreint lakk.
Ráðgjöf í viðhaldi eftir afhendingu
Við viljum að viðskiptavinir hafi þekkingu til að viðhalda bílnum rétt eftir að hann hefur fengið lakkvörn.
Þess vegna fá viðskiptavinir leiðbeiningar um rétt viðhald, viðeigandi þvottaaðferðir og hvernig best er að varðveita ástand lakks og lakkvarnar til lengri tíma.
Rétt viðhald frá fyrsta degi getur haft veruleg áhrif á hversu vel bíllinn heldur útliti sínu og hversu mikið af þvottarispum myndast með tímanum.
Ekki hefðbundin þrifaþjónusta
ÓK Bón býður ekki upp á almennan bílaþvott eða hefðbundna þrifaþjónustu.
Þrif hjá okkur eru framkvæmd þegar þau eru hluti af viðhaldi, ábyrgðarskoðun eða undirbúningi fyrir aðra þjónustu.
Þannig getum við einbeitt okkur að sérhæfðri yfirborðsvernd, leiðréttingu og langtímaviðhaldi bíla.