PPF filma (Paint Protection Film)

PPF filma er fullkomnasta mekaníska vörn sem hægt er að veita lakki ökutækis. Hún ver lakkið gegn steinkasti, rispum, núningi og daglegu álagi — án þess að breyta útliti eða karakter ökutækisins.

PPF filma (Paint Protection Film)

Hjá ÓK Bón notum við Apollo PPF, háþróaða PPF filmu sem er þróuð af Titan Coatings®. Apollo PPF byggir á sömu rannsóknar- og þróunarhefð og Titan Coatings® og er hönnuð til að standast krefjandi umhverfis- og akstursskilyrði.

Við notum hágæða, sjálflæknandi (instant healing) PPF filmur sem:

  • „læknar“ léttar rispur að sjálfum sér
  • gulna ekki og brotna ekki niður með tímanum
  • veitir UV-vörn og langan líftíma

PPF vinnslan hefst á nákvæmri undirbúningsvinnu þar sem lakkið er:

  • djúphreinsað og leirað
  • leiðrétt eftir þörf
  • fullkomlega undirbúið fyrir ásetningu filmunnar

Við bjóðum bæði upp á hlutalausnir og heildarlausnir, allt eftir notkun og þörfum hvers ökutækis. Ásetning fer fram í stýrðu umhverfi þar sem nákvæmni, hreinlæti og frágangur eru í algjörum forgangi.

Apollo PPF er hönnuð til að vinna samhliða lakkvörnum Titan Coatings®, og myndar þannig heildstæða lausn sem sameinar mekaníska vörn og háþróaða Elastomer tækni.


Apollo PPF – þróað fyrir raunverulegar aðstæður

Apollo PPF er þróað í samstarfi sérfræðinga í filmuframleiðslu og sérfræðingum í PPF ásetningu. Markmiðið er að sameina sterka TPU-filmu, háþróað lím, endingargott og fallegt yfirborð á filmu sem veitir öfluga vörn án þess að skerða útlit bílsins.

Filman er hönnuð til að þola mikið daglegt álag og tekur við höggum, steinkasti, rispum og núningi sem annars myndu lenda beint á lakkinu.

Optiheal – glansandi PPF með Instant Healing

Apollo Optiheal er glansandi PPF með Instant Healing yfirborðstækni. Léttar yfirborðsrispur og þvottamerki geta jafnað sig án hita á yfirborði filmunnar og hjálpa þannig til við að halda henni tærri og glansandi til lengri tíma.

Filman er um 190 μm að þykkt, með miklinn teygjanleika og sterkt TPU-lag sem er hannað til að taka við miklu mekanísku álagi.

Optiheal kemur með allt að 10 ára framleiðandaábyrgð samkvæmt ábyrgðarskilmálum Apollo PPF.

Stealth Skin – matt PPF

Apollo Stealth Skin veitir sömu tegund mekanískrar verndar en með mattri áferð. Filman getur bæði varðveitt upprunalegt matt lakk eða umbreytt glansandi lakki yfir í matt útlit/satín.

Stealth Skin er sjálflæknandi, mjög teygjanleg TPU-filma sem ver lakkið gegn steinkasti, rispum, núningi og daglegu sliti.

Stealth Skin kemur með allt að 6 ára framleiðandaábyrgð samkvæmt ábyrgðarskilmálum Apollo PPF.

Hvað þýðir sjálflæknandi PPF?

Sjálflæknandi eiginleikar eiga við um léttar rispur í efsta lagi filmunnar. Yfirborðið getur jafnað sig án hita og dregið þannig úr sýnilegum þvottarispum.

PPF er þó ekki óeyðandi. Mjög kraftmikið steinkast, mjög djúpur rispur eða göt geta skemmt filmuna. Kosturinn er að filman tekur við stórum hluta álagsins sem annars myndi lenda beint á lakki bílsins.

Sterk en sveigjanleg vörn

PPF þarf bæði að vera sterk og geta fylgt flóknum formum bílsins. Apollo Optiheal og Stealth Skin mælast með að minnsta kosti 300% teygjanleika samkvæmt tæknigögnum framleiðanda.

Þessi samsetning TPU, líms og yfirborðslags gerir filmunni kleift að fylgja línum bílsins á sama tíma og hún myndar sterkt varnarlag yfir lakkinu.

Hannað til að þola erfiðar aðstæður

Apollo prófar filmurnar meðal annars gegn grjótkasti, leysiefnum og hita. Í tækniprófun Optiheal kom ekki fram breyting eftir grjótpróf, leysiefnapróf eða hitapróf á bilinu 40–80°C.

Þetta skiptir máli við íslenskar aðstæður þar sem lakk verður reglulega fyrir möl, salti, óhreinindum og miklum hitabreytingum.

PPF eða lakkvörn?

PPF og lakkvörn gegna ólíkum hlutverkum.

PPF veitir fyrst og fremst mekaníska vörn gegn steinkasti, rispum, núningi og öðru líkamlegu álagi.

Lakkvörn ver yfirborðið gegn UV geislun, upplitun og tæringu og hjálpar til við að hrinda frá sér vatni og óhreinindum, auðveldar þrif og ver gegn ýmsum umhverfisáhrifum.

Fyrir hámarksheildarvörn er hægt að sameina PPF og Titan Coatings lakkvörn.

Örugg fjarlæging

Apollo PPF notar límkerfi sem er hannað fyrir stöðuga viðloðun við notkun en jafnframt hreina fjarlægingu líka. Samkvæmt Apollo er filman hönnuð til að skilja ekki eftir límleifar þegar hún er fjarlægð á réttan hátt.

Rétt ásetningu og fagleg fjarlæging skipta þó alltaf máli til að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu.


Apollo – Umhirðu- og viðhaldsleiðbeiningar

Til að tryggja að Apollo Paint Protection Film (PPF) haldist í sem bestu ástandi og skili hámarksárangri skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum um umhirðu og viðhald:

1. Biðtími fyrir fyrsta þvott

Eftir ásetningu skal bíða í 72 klukkustundir áður en ökutækið er þrifið til að tryggja að filman nái réttri viðloðun.

2. Reglulegur þvottur

Þvoið ökutækið reglulega til að viðhalda útliti þess og vernda PPF-filmuna.

Notið pH-hlutlaust bílasjampó, microfiber-þvottahanska og eingöngu vandaðan þurrkklút fyrir bíla. Nauðsynlegt að járnhreinsa reglulega, þvo flugur af við fyrsta tækifæri og halda vatnsblettum í burtu.

3. Varúð við notkun háþrýstidælu

Ef háþrýstidæla er notuð skal halda að minnsta kosti 50 cm fjarlægð frá brúnum filmunnar til að koma í veg fyrir að hún lyftist.

Notið ávallt breiða vatnsbunu, Alls ekki "turbo" stút.

4. Vörur sem mælt er með

  • Fá viðurkenndan ásetningaraðila til að setja Titan Coatings® APOLLO á til að ná fram bestu mögulegu vörn.
  • Að öðrum kosti skal nota Titan Coatings® ULTRA á þriggja mánaða fresti til að viðhalda vatnsfælandi eiginleikum filmunnar.

5. Óhreinindi og aðskotaefni

  • Með tímanum geta óhreinindi safnast upp á yfirborði PPF-filmunnar, sérstaklega við krefjandi aðstæður. Ef það gerist skal koma með ökutækið aftur á stað ásetningaraðila til að framkvæma þrif eða "létta" mössun til að endurheimta gljáa filmunnar.
  • Fjarlægið fuglaskít, trjákvoðu, vatnsbletti (alltaf þurrka eftir þrif) og önnur aðskotaefni tafarlaust til að koma í veg fyrir blettamyndun.
  • Ef óhreinindi safnast upp meðfram brúnum filmunnar skal nota alkóhól og lófrían klút til að fjarlægja þau á öruggan hátt.