Námskeið í lakkslípun og lakkvörnum

Þjálfun í RUPES BigFoot og APEX Nano Verklegt og ítarlegt námskeið þar sem farið er yfir allt ferlið við yfirborðsmeðhöndlun bíls – frá þvotti, mati á lakki og undirbúningi, yfir í lakkslípun með RUPES BigFoot kerfinu og að lokum undirbúning, ásetningu og viðhald APEX Nano lakkvörn.

Námskeið í lakkslípun og lakkvörnum

Markmiðið er að þátttakandi skilji ekki aðeins hvernig hvert verk er framkvæmt heldur hvers vegna hvert skref skiptir máli og hvernig rétt vinnubrögð, vélar, púðar og efni vinna saman til að ná sem bestri niðurstöðu.

Námsgjald: 120.000 kr. með VSK

Að loknu námskeiði og fullnægjandi þátttöku fær þátttakandi bæði viðurkenningu frá RUPES og APEX Nano Certification.

Þvottur og undirbúningur fyrir lakkslípun

Réttur undirbúningur er grunnurinn að öruggri lakkslípun. Áður en vinna við lakkið hefst þarf yfirborðið að vera vandlega hreinsað svo hægt sé að meta raunverulegt ástand þess og vinna það án þess að óhreinindi eða annað hafi áhrif á vinnsluna.

Á námskeiðinu er farið verklega í þvotta- og undirbúningsferlið frá því að bíll kemur inn þar til yfirborðið er tilbúið fyrir skoðun og lakkslípun.

Farið er meðal annars yfir:

  • Forskolun og rétta notkun hreinsiefna
  • Rétta handþvottatækni með microfiber
  • Val á viðeigandi hreinsiefnum eftir óhreinindum á yfirborði
  • Hreinsun felga, hjólbarða og hjólaskála
  • Hreinsun samskeyta og annarra svæða þar sem óhreinindi safnast fyrir
  • Örugga fjarlægingu tjöru og annarra fastra óhreininda
  • Fjarlægingu járnagna og málma
  • Rétta notkun á leir
  • Rétta skolun og þurrkun
  • Hvernig draga má úr hættu á að mynda nýjar rispur við þvott og þurrkun
  • Undirbúning viðkvæmra svæða fyrir lakkslípun
  • Lokaskoðun áður en lakkslípun hefst

Mat á lakki

Þegar bíllinn hefur verið rétt þveginn er hægt að framkvæma nákvæmara mat á raunverulegu ástandi lakksins.

Farið er yfir hvernig greina á meðal annars:

  • Þvottarispur
  • Dýpri rispur
  • Hologröm og vinnsluför
  • Oxun
  • Vatnsbletti
  • Aðra yfirborðsgalla

Út frá ástandi lakksins er síðan ákveðið hvaða vinnuferli, vélar, púðar og slípiefni henta verkefninu.

Markmiðið er að þátttakandi læri að líta á þvott og mat á yfirborði sem fyrsta hluta lakkslípunarferlisins, en ekki eingöngu sem þrif á bílnum.

RUPES BigFoot – lakkslípun

RUPES BigFoot er heildstætt kerfi fyrir lakkslípun þar sem vélar, púðar og slípiefni eru hönnuð til að vinna saman.

Á námskeiðinu er farið yfir uppbyggingu BigFoot kerfisins og hvernig velja á rétta aðferð út frá ástandi, gerð og eiginleikum lakksins.

RUPES BigFoot kerfið

Þátttakendur kynnast mismunandi vélum og vinnuaðferðum innan BigFoot kerfisins og læra hvernig eiginleikar þeirra hafa áhrif á leiðréttingu, vinnsluhraða og lokaáferð.

Farið er meðal annars yfir:

  • Random Orbital kerfi
  • Rotary kerfi
  • Val á réttri vél fyrir mismunandi verkefni
  • Rétta notkun og stjórnun vélar
  • Vinnuhraða
  • Réttan þrýsting
  • Hreyfingu vélar og vinnusvæði
  • Vinnslu á mismunandi formum og flötum
  • Örugg vinnubrögð við kanta
  • Vinnslu á þröngum og viðkvæmum svæðum

Markmiðið er að þátttakandi skilji ekki aðeins hvernig vélarnar eru notaðar heldur hvenær og hvers vegna mismunandi kerfi og vinnuaðferðir eru valdar.

Púðar og slípiefni

Rétt samsetning vélar, púða og slípiefnis hefur afgerandi áhrif á bæði leiðréttingu og lokaáferð.

Farið er yfir mismunandi púða og slípiefni innan RUPES BigFoot kerfisins og hvernig rétt samsetning er valin eftir lakki, ástandi þess og þeim árangri sem stefnt er að.

Farið er meðal annars yfir:

  • Svamppúða
  • Ullarpúða
  • Microfiber púða
  • Mismunandi grófleika púða
  • Val á slípiefni
  • Samspil vélar, púða og slípiefnis
  • Skurð
  • Pólering
  • Fín pólering
  • Rétt magn slípiefnis
  • Þrif og viðhald púða
  • Hvernig breyting á púða eða slípiefni hefur áhrif á vinnsluna

Lakkslípun og yfirborðsleiðrétting

Þátttakendur læra að byggja upp rétt vinnuferli eftir ástandi bílsins og þeim árangri sem stefnt er að.

Farið er meðal annars í:

  • Einna þrepa lakkslípun
  • Fjölþrepa lakkslípun
  • Leiðréttingu á þvottarispuðu lakki
  • Fjarlægingu og minnkun rispa
  • Hámarks gljáa og hreina lokaáferð
  • Hvernig draga má úr hættu á hologrömmum og öðrum vinnsluförum
  • Mat á árangri eftir hvert vinnsluþrep
  • Lokaskoðun lakks eftir lakkslípun

Mikil áhersla er lögð á að þátttakandi læri að ná tilætluðum árangri á öruggan, skilvirkan og markvissan hátt, án óþarfa vinnslu á lakkinu.

APEX Nano – lakkvarnir

Eftir lakkslípun er farið yfir undirbúning, ásetningu og viðhald APEX Nano lakkvarna.

Rétt ásetning ein og sér tryggir ekki góða niðurstöðu. Ástand og undirbúningur yfirborðsins fyrir ásetningu hefur veruleg áhrif á tengingu lakkvarnar við yfirborðið, lokaáferð og endingu hennar.

Því er farið í allt ferlið frá fullunninni lakkslípun að full húðuðum bíl með lakkvörn frá Apex Nano

Undirbúningur fyrir lakkvörn

Farið er meðal annars yfir:

  • Mat á yfirborði eftir lakkslípun
  • Fjarlægingu leifa eftir slípiefni
  • Lokahreinsun yfirborðs
  • Undirbúning lakks fyrir ásetningu
  • Rétta notkun yfirborðshreinsiefna
  • Skoðun yfirborðs undir réttri lýsingu
  • Réttar aðstæður fyrir ásetningu
  • Hvernig tryggja á að yfirborðið sé tilbúið fyrir lakkvörn

Þátttakendur læra hvers vegna hvert skref skiptir máli og hvernig rangur eða ófullnægjandi undirbúningur getur haft áhrif á lokaárangur og endingu lakkvarnarinnar.

Ásetning APEX Nano lakkvarna

Farið er verklega yfir rétta ásetningu APEX Nano lakkvarna og hvernig tryggja á jafna niðurstöðu.

Farið er meðal annars yfir:

  • Eiginleika APEX Nano lakkvarna
  • Val á réttri lakkvörn eftir notkun og þörfum
  • Réttar aðstæður við ásetningu
  • Rétt magn efnis
  • Dreifingu efnis á yfirborð
  • Vinnuaðferð við ásetningu
  • Vinnutíma efnis
  • Rétta fjarlægjingu
  • Skoðun yfirborðs eftir ásetningu
  • Hvernig koma má í veg fyrir ójafna ásetningu
  • Algeng mistök við ásetningu
  • Hvernig bregðast á við mistökum
  • Frágang eftir ásetningu
  • Meðhöndlun bíls eftir ásetningu

Markmiðið er að þátttakandi geti framkvæmt ferlið frá undirbúningi yfirborðs að fullunninni APEX Nano lakkvörn með réttum og endurtekningarhæfum vinnubrögðum.

Viðhald lakkvarna

Rétt viðhald er mikilvægur hluti af því að varðveita eiginleika og endingu lakkvarnar.

Þátttakendur læra meðal annars:

  • Rétta þvottatækni á vörðum bíl
  • Val á viðeigandi þvottaefnum
  • Hvernig draga má úr myndun þvottarispa
  • Reglulega afmengun
  • Hvernig meta á ástand lakkvarnar
  • Rétt viðhald lakkvarnar
  • Hvernig hámarka má virkni og endingu
  • Hvenær þörf er á ítarlegri afmengun eða viðhaldsmeðferð
  • Rétta upplýsingagjöf til viðskiptavinar eftir meðhöndlun

Verkleg þjálfun

Námskeiðið byggir að stórum hluta á verklegri kennslu.

Þátttakendur fá að vinna með RUPES BigFoot kerfið og framkvæma mismunandi vinnsluþrep undir leiðsögn. Einnig er farið verklega í þvott og afmengun, mat á lakki, undirbúning fyrir lakkslípun og undirbúning og ásetningu APEX Nano lakkvarna.

Markmiðið er að þátttakendur öðlist ekki eingöngu fræðilega þekkingu heldur verklega færni og skilning á heildarferlinu sem hægt er að nýta við raunveruleg verkefni.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja byggja upp faglega grunnþekkingu og þeim sem þegar starfa við bílaumhirðu eða tengda þjónustu og vilja auka þekkingu sína á faglegum þrifum, lakkslípun og lakkvörnum.

Námskeiðið hentar meðal annars:

  • Starfsfólki bílaumboða
  • Starfsfólki bílasala og afhendingardeilda
  • Bílamálurum og réttingarverkstæðum
  • Bón- og detailing fyrirtækjum
  • Fagaðilum sem vilja bæta lakkslípun og lakkvörnum við sína þjónustu
  • Einstaklingum sem vilja öðlast faglega þekkingu á faginu

Tvær viðurkenningar að námskeiði loknu

Að loknu námskeiði og fullnægjandi þátttöku fær þátttakandi tvær viðurkenningar:

RUPES viðurkenning

Viðurkenning fyrir þjálfun í RUPES BigFoot lakkslípunarkerfinu, þar sem farið hefur verið yfir rétta notkun kerfisins, vélar, púða, slípiefni og fagleg vinnubrögð við lakkslípun.

APEX Nano Certification

Viðurkenning fyrir þjálfun í APEX Nano lakkvörnum, þar sem farið hefur verið yfir réttan undirbúning yfirborðs, ásetningu, frágang og viðhald lakkvarna.

Þátttakandi fær þannig staðfestingu á þeirri faglegu þjálfun sem farið hefur verið í bæði í RUPES BigFoot og APEX Nano kerfunum.

Námsgjald

120.000 kr. með VSK

Námsgjaldið innifelur fræðilega og verklega kennslu í öllu ferlinu:

Þvottur, mat og undirbúningur lakks

RUPES BigFoot lakkslípun

Yfirborðsleiðrétting og fullnaðarfrágangur

Undirbúningur fyrir lakkvörn

Ásetning APEX Nano lakkvarna

Viðhald lakkvarna

Að loknu námskeiði og fullnægjandi þátttöku fær þátttakandi bæði RUPES viðurkenningu og APEX Nano Certification.

Frá þvotti að fullunnum bíl

Markmið námskeiðsins er að þátttakandi skilji heildarferlið frá upphafi til enda.

Frá réttum þvotti og afmengun, mati á ástandi lakks og vali á vinnuferli, yfir í lakkslípun með RUPES BigFoot kerfinu og að lokum undirbúning, ásetningu og viðhald APEX Nano lakkvarnar.

Þekkingin á að nýtast strax við raunveruleg verkefni og leggja grunn að öruggum, skilvirkum og faglegum vinnubrögðum.

RUPES BigFoot × APEX Nano
Frá undirbúningi að fullunnum bíl.