Lakkvörn – Titan Coatings

Titan Coatings® byggir á áratuga rannsóknum og þróun á military-grade polymerum fyrir her- og varnariðnað. Sú tækni var síðar aðlöguð að ökutækjum, flugvélum og bátum sem lagði grunn að stofnun fyrirtækisins.

Lakkvörn – Titan Coatings

Frá upphafi hefur Titan Coatings® lagt ríka áherslu á að sannreyna endingu og virkni við raunverulegar og krefjandi loftslags- og umhverfisaðstæður út um allan heim. Í dag er fyrirtækið leiðandi framleiðandi lakkvarna í yfir 30 löndum og í stöðugri tæknilegri þróun.

Titan Coatings® hefur þróað fjölda háþróaðra lausna, þar á meðal HyperQuartz®, DiamondTech® og Dark Matter Technology® — byggða á Carbon Nanotubes sem unnið er úr Graphene — sem veitir betri bindingu, endingu og mótstöðu gegn efna- og umhverfisálagi. 

Nýjasta tækni Titan Coatings fyrir 2026, ElastoTek®, er háþróuð hermitækni sem býr yfir einstakri mótstöðu gegn oxun og veitir langvarandi og stöðugri vörn. 

Titan Coatings® framleiðir háþróaða elastómer- tækni sem er hönnuð fyrir raunverulegar aðstæður, ekki eingöngu glans í sýningarsal. 

  • dregur úr oxun og UV-skemmdum
  • veitir mikið efna- og saltþol
  • eykur fráhrindingu og auðveldar þrif
  • ver lakkið gegn daglegu sliti

Ólíkt hefðbundnum keramiklausnum býr elastómer-tæknin yfir meiri sveigjanleika, sem hentar sérstaklega vel íslensku loftslagi með miklum hitasveiflum og krefjandi aðstæðum.

Hjá ÓK Bón er lakkvörn valin út frá notkun, akstursskilyrðum og óskum eiganda um endingu og viðhald. Allar lakkvarnir eru settar á samkvæmt ströngum verklagsreglum og með réttri undirvinnu til að tryggja hámarks bindingu og raunverulega endingu.

Mikael Magnússon, eigandi ÓK Bón, starfar jafnframt sem Technical Master hjá Titan Coatings® og tekur virkan þátt í þróun, prófunum og fínstillingu formúla við raunverulegar aðstæður á Íslandi. Þannig eru þær lausnir sem við bjóðum upp á ekki aðeins þróaðar á rannsóknarstofu, heldur staðfestar í daglegri notkun við krefjandi skilyrði.

Titan Coatings® er ISO 9001 vottað fyrirtæki, sem tryggir stöðug gæði, stranga gæðastjórnun og lausnir sem standast raunverulegar kröfur viðskiptavina.


Titan Coatings – háþróuð lakkvörn

Titan Coatings þróar háþróaðar yfirborðsvarnir fyrir bíla, flug, báta og aðrar krefjandi aðstæður. Tæknin byggir á sérhæfðum sterkum himnum sem mynda þétt varnarlag yfir yfirborðinu.

Ólíkt hefðbundnu bóni eða einföldum yfirborðsvörnum bindast Titan Coatings húðanir við yfirborðið og eru hannaðar til að veita langtímavörn gegn efnaálagi, UV-geislun, mengun og daglegu umhverfisálagi.

Kerfin eru byggð upp með mismunandi grunn- og yfirlögum eftir því hversu mikillar endingar, fráhrindingar og verndar er óskað.

Lakkvarnirnar okkar

APEX NANO Alpha Quartz

Einföld og áhrifarík skammtímavörn

Alpha Quartz er fjölnota quartz-elastomer húðun frá APEX NANO, sem er vörumerki Titan Technologies.

Húðunin inniheldur 92% solids, er án leysiefna og inniheldur ekkert VOC. Elastomer-tæknin myndar sveigjanlegt varnarlag og hægt er að nota Alpha Quartz á meðal annars lakk, málma, PPF/vinyl, plast og felgur.

Alpha Quartz er góður kostur fyrir þá sem vilja einfalda og áhrifaríka yfirborðsvörn án þess að fara í langtíma lakkvarnarkerfi.

Tæknilegar upplýsingar

  • Ending á lakki: yfir 2 ár
  • Ending á PPF/vinyl: yfir 1 ár
  • Ending á plasti: yfir 1 ár
  • Ending á felgum: yfir 1 ár
  • Harka: allt að 9H
  • Snertihorn vatns: 110°
  • pH-þol: pH 2–12
  • Full hersla: 24 klst.
  • 92% solids
  • Solvent-free
  • 0% VOC
  • Notkun: lakk, málmar, PPF/vinyl, plast og aðrir harðir fletir

APEX NANO ONE

Fjölnota carbon membrane lakkvörn

APEX NANO ONE er háþróuð fjölnota carbon membrane húðun sem er styrkt með graphene og borophene.

ONE notar nýja kynslóð adhesion promoters sem hjálpa húðuninni að bindast mismunandi yfirborðum. Hún er þróuð sem ein fjölnota lausn fyrir lakk, málma, PPF/vinyl, plast, felgur og aðra harða fleti.

Húðunin veitir mikla vatnsfráhrindingu og er hönnuð til að standast UV-geislun, raka, efnaálag og önnur umhverfisáhrif.

Tæknilegar upplýsingar

  • Ending á lakki: yfir 3–4 ár
  • Ending á PPF/vinyl: yfir 2 ár
  • Ending á plasti: yfir 18 mánuðir
  • Ending á felgum: yfir 2 ár
  • Harka: allt að 10H
  • Snertihorn vatns: 120°
  • pH-þol: pH 1–13
  • Herðingartími: 2 klst.
  • Tækni: graphene og borophene styrkt carbon membrane
  • Notkun: lakk, málmar, PPF/vinyl, plast, felgur og aðrir harðir fletir

Titan Coatings Extreme Performance

PX10 – ElastoTek® Super Composite Hybrid Micron Coating

Langtíma grunnvörn og undirstaða öflugustu kerfanna okkar

PX10 er háþróuð grunnvörn byggð á ElastoTek® og Dark Matter Technology®. Húðunin myndar einstaklega þétta, styrkta hybrid- himnu yfir lakkinu.

Við herslu á sér stað stýrð útþensla á nano- og míkróskala sem hjálpar til við að mynda sterkt en jafnframt sveigjanlegt varnarlag. Himnan getur orðið allt að 12 μm að þykkt.

PX10 er hannað með mikla mótstöðu gegn oxun, UV-geislun, efnaálagi og umhverfisáhrifum og er grunnurinn sem öflugri Titan Coatings kerfum sem eru byggð ofan á.

Tæknilegar upplýsingar

  • Gerð: Base coating / grunnlag
  • Þykkt: allt að 12 μm
  • Harka: allt að 10H
  • Áætlaður endingartími: 10+ ár samkvæmt 2026 tæknigögnum framleiðanda
  • Herðingartími: 12 klst.
  • Fullt efnaþol: eftir 7 daga
  • Tími milli laga: 2 klst.
  • Hámarksfjöldi laga: 2
  • Notkun: 3 ml/m²
  • Samhæft með: VULCAN og APOLLO
  • Viðhald: ULTRA eða OMNIGUARD
  • Tækni: ElastoTek® / Dark Matter Technology®

PX10 er fyrst og fremst grunnurinn sem veitir þéttleika, bindingu og langtímaendingu kerfisins. Með því að bæta sérhæfðu yfirlagskerfi ofan á PX10 er hægt að breyta og styrkja eiginleika heildarkerfisins.

PX10 + APOLLO TX200

Langtímavörn með öflugri fráhrindingu og einstaklega sleipu yfirborði

APOLLO TX200 er ElastoTek® Flexifilm Membrane yfirlagsvörn sem sameinar HydroTX145 og Apollo TX130 tækni Titan Coatings.

APOLLO er þróað bæði sem sérhæft yfirlagskerfi yfir Titan grunnvarnir og sem coat fyrir PPF.

Yfirborðið er omniphobic, sem þýðir að það er hannað til að hrinda bæði vatns- og olíukenndum efnum frá sér. Markmiðið er mikil sleipni, minni viðloðun mengunar, öflug vatnsfráhrinding og auðveldara viðhald.

Mimetic efni í Flexifilm-himnunni mynda sjálfendurnýjandi yfirborð sem hjálpar til við að viðhalda omniphobic eiginleikum húðunarinnar.

Tæknilegar upplýsingar APOLLO TX200

  • Gerð: Top coat og PPF coating
  • Þykkt: 5 μm
  • Viðbótarending: +5 ár
  • Herðingartími: 12 klst.
  • Fullt efnaþol: eftir 7 daga
  • Tími milli laga: 2 klst.
  • Hámarksfjöldi laga: 2
  • Notkun: 3 ml/m²
  • Eiginleikar: omniphobic, mikil sleipni og mengunarfráhrinding
  • Notkunarsvið: yfirlagsvörn og PPF
  • Viðhald: ULTRA eða OMNIGUARD
  • Tækni: ElastoTek® / Dark Matter Technology®

Samsetning PX10 og APOLLO TX200 sameinar langtíma grunnvörn PX10 við fráhrindingu, sleipni og yfirborðseiginleika APOLLO.

PX10 + VULCAN

Öflugasta lakkvarnarkerfið okkar fyrir mikinn akstur og krefjandi notkun

VULCAN er ElastoTek® Rubber Membrane yfirlagsvörn sem myndar sveigjanlega, gúmmíkennda himnu yfir grunnvörninni.

Hún er sérstaklega þróuð sem verndandi top coat og myndar fórnarlag yfir grunnkerfinu gegn UV-geislun, efnaálagi, mengun og núningi.

VULCAN er omniphobic með mikla vatns- og olíufráhrindingu. Sjálfendurnýjandi yfirborðið hjálpar húðuninni að viðhalda fráhrindingu og sleipni við daglega notkun.

Þetta er kerfið sem við mælum með þegar bíll er mikið keyrður og hámarksending og yfirborðsvörn eru í forgangi.

Tæknilegar upplýsingar VULCAN

  • Gerð: Protective top coat / verndandi yfirlag
  • Þykkt: 5 μm
  • Viðbótarending: +5 ár
  • Herðingartími: 12 klst.
  • Fullt efnaþol: eftir 7 daga
  • Tími milli laga: 2 klst.
  • Hámarksfjöldi laga: 2
  • Notkun: 3 ml/m²
  • Eiginleikar: omniphobic, hydrophobic og oleophobic
  • Sjálfendurnýjandi yfirborð
  • Samhæft með: APOLLO sem viðbótar top coat
  • Viðhald: ULTRA eða OMNIGUARD
  • Tækni: ElastoTek® / Dark Matter Technology®

VULCAN er hannað til að verja grunnkerfið undir og lengja endingartíma þess, sérstaklega við mikið efna-, UV- og umhverfisálag.

Hvaða lakkvörn hentar mér?

Rétt lakkvörn ræðst ekki eingöngu af því hversu mörg ár framleiðandi gefur upp sem mögulegan endingartíma. Akstursmagn, geymsla bílsins, þvottavenjur, umhverfi og viðhald hafa öll áhrif á raunverulega endingu.

Þess vegna veljum við lakkvarnarkerfi meðal annars út frá árlegum akstri og notkun bílsins.

Alpha Quartz – einföld og áhrifarík skammtímavörn.

APEX NANO ONE – hentar sérstaklega fyrir minni akstur og þá sem vilja öfluga fjölnota yfirborðsvörn.

PX10 – langtíma grunnvörn fyrir meiri akstur og auknar kröfur um endingu.

PX10 + APOLLO TX200 – fyrir meiri akstur þar sem langtímavörn, mikil fráhrinding og auðvelt viðhald eru í forgangi.

PX10 + VULCAN – öflugasta kerfið okkar fyrir mikinn árlegan akstur og krefjandi notkun.

Þjónustusmiður ÓK Bón notar árlegan akstur ásamt öðrum upplýsingum til að hjálpa við val á þeirri lakkvörn sem hentar notkun bílsins best.

Sjálfendurnýjandi eiginleikar

Sum Titan Coatings kerfi nota sveigjanlegar ElastoTek® himnur með sjálfendurnýjandi eiginleikum.

Þeir eiginleikar eiga við um yfirborð húðunarinnar og geta hjálpað henni að jafna sig eftir létt yfirborðsálag og viðhalda eiginleikum sínum.

Þetta þýðir ekki að lakkvörn geri við djúpar rispur eða skemmdir í lakkinu sjálfu.

Lakkvörn eða PPF?

Lakkvörn og PPF gegna ólíkum hlutverkum.

Lakkvörn myndar þunnt varnarlag yfir yfirborðinu. Hún veitir efna- og umhverfisvörn, eykur fráhrindingu, dregur úr viðloðun óhreininda og auðveldar þrif og viðhald.

PPF er mun þykk filma sem er sérstaklega hönnuð til að taka við steinkasti, rispum, núningi og öðru álagi.

Lakkvörn kemur því ekki í stað PPF þegar markmiðið er vörn gegn steinkasti.

Fyrir hámarksheildarvörn er hægt að sameina PPF og Titan Coatings yfirborðsvörn.

Herðing og fyrstu dagarnir

Rétt umhirða strax eftir ásetningu skiptir máli fyrir endingu og eiginleika lakkvarnarinnar.

PX10, APOLLO og VULCAN eru með 12 klukkustunda upphaflegan herslutíma samkvæmt tæknigögnum framleiðanda. Fullt efnaþol næst eftir 7 daga.

Á þessum tíma skal forðast þrif, óþarfa efnaálag og núning og fylgja leiðbeiningum ÓK Bón um fyrstu þrif og viðhald.

Reglulegt og rétt viðhald hjálpar lakkvörninni að viðhalda fráhrindingu, útliti og verndandi eiginleikum til lengri tíma.