Lakkslípun (mössun)
Lakkslípun er ein mikilvægasta og tæknilegasta þjónusta sem við bjóðum upp á. Markmiðið er að leiðrétta ófullkomleika í lakki og endurheimta dýpt, gljáa og jafnvægi yfirborðsins - þó lakkið sé á nýjum bíl.

Lakkslípun er leiðrétting á lakki og endurnýjun á yfirborði lakksins. Markmiðið er að fjarlægja eða draga úr rispum, slípiförum, upplitun, oxun og öðrum yfirborðsgöllum, endurheimta dýpt, gljáa og skýrleika lakksins.
Hversu umfangsmikil lakkslípun er nauðsynleg ræðst ekki eingöngu af aldri bílsins. Ástand lakksins, rispur, upplitun, oxun, fyrri viðgerðir og almenn meðferð bílsins ráða því hversu mörg þrep eru ráðlögð.
Áður en vinna hefst er lakkið skoðað og þykkt þess mæld. Það er sérstaklega mikilvægt á notuðum bílum þar sem einstakir fletir geta hafa verið endurmálaðir eftir tjón eða viðgerðir og þurfa þá aðra nálgun en upprunalegt verksmiðjulakk.
Fín lakkslípun
Á nýjum og vel með förnum bílum er fín lakkslípun fyrst og fremst framkvæmd til að hreinsa, betrumbæta og hámarka gljáa lakksins fyrir lakkvörn.
Við slíka vinnu er óþarfi að óttast að verið sé að „skera lakkið niður“. Notuð eru fín slípiefni og aðferðir sem vinna mjög lítið á lakkinu en fjarlægja væga yfirborðsgalla, léttar þvottarispur og óhreinindi sem hefðbundin þrif ná ekki að fjarlægja.
Markmiðið er að skapa eins hreint, slétt og gljáandi yfirborð og mögulegt er áður en lakkvörn er sett á.
Tveggja þrepa lakkslípun
Tveggja þrepa lakkslípun er ætluð lakki þar sem væg fínslípun nægir ekki til að ná ásættanlegri leiðréttingu.
Fyrsta þrepið felur í sér grófari skurð með slípimassa til að vinna á rispum og öðrum yfirborðsgöllum. Grófari skurður getur skilið eftir sig fíngerð slípiför og því er yfirborðið unnið aftur í öðru þrepi.
Í seinna þrepinu er lakkið fínslípað til að vinna niður för eftir fyrra þrepið og hámarka gljáa, dýpt og skýrleika lakksins.
Þriggja þrepa lakkslípun
Þriggja þrepa lakkslípun er umfangsmeiri leiðrétting fyrir lak sem er með meiri og dýpri rispur eða þarfnast verulegrar yfirborðsleiðréttingar.
Fyrsta þrepið er grófur skurður með rotary-vél, þar sem unnið er markvisst á dýpri rispum og göllum.
Í öðru þrepi er notuð dual action-vél með grófari slípingu til að vinna áfram yfirborðið og fjarlægja eða draga úr förum sem rotary-vinnan getur skilið eftir.
Að lokum er lakkið fínslípað til að hámarka gljáa, skýrleika og endanlegt yfirborð.
Full lakkleiðrétting
Full lakkleiðrétting er umfangsmesta leiðréttingin sem við framkvæmum og er ætluð bílum þar sem markmiðið er að ná eins mikilli leiðréttingu á lakkinu og öruggt er.
Vinnan felur í sér þriggja þátta skurð auk lokafínslípunar.
Byrjað er með rotary-vél og unnið sérstaklega á dýpri rispum og göllum. Notaðar eru bæði 3” og 6” vélar eftir stærð og lögun flata til að hægt sé að vinna markvisst á einstökum svæðum.
Þar sem við á getur einnig þurft að blautslípa með sandpappír til að vinna á staðbundnum djúpum rispum, slípiförum eða öðrum göllum sem hefðbundin vélarslípun nær ekki að leiðrétta nægilega.
Því næst tekur við grófari vinna með dual action-vél til að vinna niður för eftir rotary-vinnuna og jafna yfirborðið. Að lokum er lakkið fínslípað til að ná hámarks gljáa, dýpt og skýrleika.
Full lakksleiðrétting þýðir þó ekki að allar rispur séu fjarlægðar hvað sem það kostar. Öryggi og varðveisla lakksins hefur alltaf forgang.
Hvaða rispur er ekki hægt að fjarlægja?
Ekki er öruggt eða skynsamlegt að fjarlægja allar rispur að fullu.
Ef rispa nær of djúpt niður getur þurft að fjarlægja óeðlilega mikið af glæru til að jafna yfirborðið. Þá er hætta á að farið sé í gegnum glæruna og valdið varanlegum skemmdum.
Í slíkum tilfellum er frekar unnið að því að draga eins mikið úr rispunni og öruggt er, í stað þess að fórna heilbrigði lakksins til að ná henni alveg burt.
Djúpar skemmdir sem ná í gegnum lakk eða niður í grunn þurfa almennt málningarviðgerð frekar en lakkslípun.
Þykkt lakksins er mæld
Við lakkslípun er þykkt lakksins mæld áður en umfangsmikil leiðrétting er framkvæmd.
Þetta er sérstaklega mikilvægt á notuðum bílum. Bíll getur hafa verið málaður að hluta eftir tjón eða viðgerð án þess að það sé augljóst við fyrstu skoðun.
Mismunandi þykkt, gerð og ástand lakks getur kallað á mismunandi vinnuaðferðir á einstökum flötum. Þess vegna er ekki sjálfkrafa beitt sömu aðferð á allan bílinn.
Undirbúningur fyrir lakkslípun
Þrif fyrir lakkslípun eru mun umfangsmeiri en hefðbundin viðhaldsþrif.
Markmiðið er að fjarlægja eins mikið og mögulegt er af föstum og bundnum óhreinindum áður en slípivinna hefst. Umfang þrifanna fer eftir aldri, notkun og ástandi bílsins.
Notaðar eru mismunandi hreinsiaðferðir og meðal annars súr og basísk hreinsiefni eftir því hvaða hörðu óhreinindi þarf að fjarlægja.
Þannig er meðal annars unnið á steinefnaútfellingum, tjöru, málmögnum og öðrum óhreinindum sem hafa bundist yfirborðinu.
Réttur undirbúningur skiptir miklu máli. Lakkslípun á yfirborði með hörð og föst óhreinindi getur bæði dregið úr gæðum vinnunnar og aukið hættu á að óhreinindi valdi frekari rispum við vinnslu.
Hvað veldur skemmdum í lakki?
Rispur og þvottarispur
Stór hluti fíngerðra rispa í lakki myndast við þrif og þurrkun.
Ef föst óhreinindi eru ekki fjarlægð nægilega vel áður en snerting hefst við lakkið, eða ef notuð eru óhrein eða of gróf áhöld, geta agnir dregist eftir yfirborðinu og myndað rispur.
Með tímanum safnast þessar rispur upp og lakkið missir skýrleika og gljáa.
Grjótkast og sandblástur
Grjótkast og sandblástur eru annars konar skemmdir en hefðbundnar þvottarispur.
Sandur, möl og veggrjót geta lent á lakkinu á miklum hraða og valdið punktaskemmdum eða sliti. Slíkar skemmdir geta farið í gegnum glæru, lit og grunn því er ekki alltaf hægt að leiðrétta þær með lakkslípun.
Lakkslípun getur bætt yfirborðið í kringum skemmdirnar en getur ekki endurbyggt lakk sem hefur brotnað eða horfið úr yfirborðinu.
Oxun, upplitun og efnafræðilegt álag
Lakkið verður fyrir stöðugu umhverfis- og efnafræðilegu álagi frá því bíllinn fer í notkun.
UV-geislun, vegsalt, steinefni, umhverfismengun, sterk hreinsiefni og önnur efni geta með tímanum haft áhrif á yfirborð og útlit lakksins. Áhrifin geta meðal annars komið fram sem upplitun, oxun, vatnsblettir, minnkaður gljái og önnur yfirborðsskemmd.
Þetta getur byrjað mun fyrr en margir gera sér grein fyrir, sérstaklega þegar lakkið er óvarið og bíllinn verður reglulega fyrir erfiðum íslenskum aðstæðum.
Titan Coatings lakkvörn myndar verndarlag yfir lakkinu sem hjálpar til við að verja yfirborðið gegn slíku efnafræðilegu og umhverfislegu álagi.
Sandpappírsför og fyrri viðgerðir
Sandpappírsför geta komið fyrir á nýjum bílum, þó það sé sjaldgæfara, til dæmis eftir leiðréttingar á lakki í framleiðslu eða fyrir afhendingu. Jafnvel frá verksmiðju.
Þær eru algengari á flötum sem hafa verið endurmálaðir eða lagfærðir.
Slík för geta verið mjög mismunandi að dýpt og því þarf að meta hvert tilfelli sérstaklega áður en ákveðið er hversu langt er öruggt að ganga í leiðréttingu.
Hvað getur lakkslípun lagað – og hvað ekki?
Lakkslípun vinnur á skemmdum sem eru í yfirborði lakksins með því að leiðrétta og jafna glæru. Hún getur hins vegar ekki endurbyggt lakk sem vantar eða lagað skemmdir sem ná of djúpt niður í glæru, lit og grunn.
Þvottarispur og fínar rispur
Fínar rispur og svokallaðar þvottarispur myndast yfirleitt við þrif og þurrkun þegar óhreinindi eru dregin eftir lakkinu eða of gróf eða óhrein áhöld eru notuð.
Þetta eru þær skemmdir sem lakkslípun vinnur hvað best á. Umfang þeirra ræður því hversu mörg þrep þarf til að ná tilætluðum árangri.
Dýpri rispur
Dýpri rispur er oft hægt að fjarlægja eða draga verulega úr, en aðeins svo lengi sem nægilegt og öruggt magn af lakki er til staðar.
Ef full fjarlæging krefst þess að of mikið sé tekið af lakkinu er rispan aðeins leiðrétt eins langt og öruggt er. Við fórnum aldrei heilbrigði lakksins til þess að fjarlægja eina rispu að fullu.
Grjótkast og sandblástur
Grjótkast og sandblástur valda oft raunverulegu tapi á lakki frekar en eingöngu yfirborðsrispum.
Lakkslípun getur bætt yfirborðið í kringum skemmdirnar og minnkað ásýnd þeirra, en getur ekki endurbyggt lakk sem hefur brotnað af eða horfið. Slíkar skemmdir geta þurft punktaviðgerð eða málningarviðgerð.
Vatnsblettir og steinefnaútfellingar
Vatnsblettir geta verið allt frá steinefnum sem liggja á yfirborðinu yfir í varanlegar ætingar á lakkinu.
Yfirborðsútfellingar er oft hægt að fjarlægja með sérhæfðum hreinsiefnum án lakkslípunar. Ef steinefnin hafa hins vegar ætt sig niður í lakkið getur þurft lakkslípun til að leiðrétta yfirborðið.
Mjög djúpar ætingar er ekki alltaf öruggt að fjarlægja að fullu.
Oxun og upplitun
Lakkslípun getur í mörgum tilfellum endurheimt gljáa, dýpt og skýrleika í lakki sem hefur orðið matt eða upplitað vegna umhverfis- og efnafræðilegs álags.
Árangurinn fer þó eftir ástandi lakksins. Ef um raunverulega skemmd eða niðurbrot á glæru er að ræða getur málningarviðgerð verið eina rétta lausnin.
Sandpappírsför og för eftir fyrri viðgerðir
Sandpappírsför og önnur vinnsluför eftir málningarviðgerðir er oft hægt að leiðrétta með lakkslípun.
Fyrst þarf þó að meta og mæla lakkið þar sem endurmálaðir fletir geta verið mjög mismunandi að þykkt og eiginleikum.
Djúpar málningarskemmdir
Ef rispa eða skemmd hefur farið í gegnum glæru og lit getur lakkslípun ekki endurbyggt það sem vantar.
Ef grunnur eða málmur sést þarf almennt að skoða málningarviðgerð í stað þess að reyna að slípa skemmdina burt.
Ryð
Lakkslípun er ekki ryðviðgerð.
Ef um mjög litla staðbundna skemmd er að ræða getur þurft að loka henni með viðeigandi málningarlagfæringu. Ef ryð er orðið umfangsmeira eða hefur þróast undir lakkinu þarf að leita til fagaðila í málningar- og réttingavinnu.
Einfalda reglan er: Lakkslípun leiðréttir yfirborð lakksins. Hún endurbyggir ekki lakk sem vantar og við fjarlægjum aldrei meira af heilbrigðu lakki en öruggt er til þess eins að ná rispu alveg burt.